Bakstur, Ýmislegt

Spelt brauðbollur, tvær útærslur

30. January, 2016
DSC_0485

Þegar ég byrjaði að blogga fyrir rétt rúmu ári, vissi ég svo sem ekkert hvað ég ætlaði mér með það annað en að blogga um matinn sem við fjölskyldan nærðum okkur á. Þar sem ég var og er enn í launalausu leyfi frá kennslu velti ég því aðeins fyrir mér hvort það að vera bloggari gæti verið launuð vinna. Ég talaði við nokkra sérfræðinga um málið en allir voru þeir sammála að það væri nánast útilokað. Íslenski markaðurinn væri allt of lítill og þar að auki eru margir góðir að blogga um mat. En ef ég aftur á móti setti nánast allan heiminn undir og bloggaði á ensku gæti ég skoðað það. Nei, því hafði ég ekki áhuga á og ætla að halda áfram að vera íslenskur áhuga bloggari.

Ég var nú ekki alveg raunsæ þegar ég hugleiddi bloggið. Bloggfærslurnar sá ég þannig fyrir mér að ég eldaði eins og venjulega, smellti nokkrum myndum af matnum sem ég tæki á símann og skrifaði færslu. En nei! Ég var stoppuð með því sama, af blaðakonu sem hafði samband við mig. Hún tjáði mér að sér finndist færslurnar mínar nokkuð góðar en myndatakan svolítið skrýtin. Vægt til orða tekið. Þar þyrfti ég að taka mig á. Ég hafði ekki gert ráð fyrir að ég þyrfti að læra ljósmyndun. En þegar ég skoðaði þetta með hennar augum sá ég að auðvitað hafði hún rétt fyrir sér. Ég fékk kunningjakonu mína Önnu Fjólu ljósmyndara til að aðstoða mig nokkrum sinnum við myndatökur. Það var bæði ótrúlega skemmtilegt, lærdómsríkt og hún tók svo fallegar myndir. Ég vart þekkti matinn minn. Auk þess fór ég á tvö ör ljósmyndanámskeið. Allt þetta ásamt æfingunni hefur hjálpað mér töluvert.

Þegar farið er í að kanna ókunnar slóðir þarf maður að vera opinn fyrir ýmsu. Ég hef reynt að vera það. Það hefur komið mér skemmtilega á óvart að nokkur blöð hafa leitað til mín eftir uppskriftum. Nú á þessu blogg ári mínu hef ég verið í Kvennablaðinu, Smartlandi, jólablaði Fréttablaðsins og tvisvar í Vikunni. Auðvitað hef ég verið fús til að deila uppskriftum, það hefur mér bara fundist ánægjulegt. Aftur á  móti þegar farið var að mynda mig fannst mér það heldur erfiðara. En lét slag standa.

DSC_0447

Í Vikunni sem kom út 28. janúar gaf ég uppskrift af ótrúlega góðum brauðbollum með sveppum og ólívum. Það sem mér finnst svo skemmtilegt með brauð uppskriftir er að maður getur leikið sér með þær að vild. Bætt í því sem manni þykir gott eða finnst passa með matnum sem bera á brauðið fram með, eða nota bara það sem til er í skápunum. Það er bara eins og allt gangi. Mér finnst aftur á móti nauðsynlegt að fara eftir mjöl og vökvamagninu.

Eitt verð ég að taka fram að þegar verið er að baka úr geri er nauðsynleg að hafa lokaða glugga í eldhúsinu, svo ekki myndist dragsúgur. Þá er hætta á að brauðin lyfti sér ekki og ekkert verði varið í þau. Einnig er gott ráð í lyftingarferlinu að setja skálina með deiginu í fulla skál af sjóðandi heitu vatni. Bætið síðan heitu vatni í öðru hverju á meðan deigið er að lyfta sér.

Brauðbollur með sveppum og ólívum

Þessi uppskrift var í Vikunni.

Úr uppskriftinni fæ ég 12 stk.

Innihald:

  • 3 bollar gróft lífrænt spelt.
  • 2 tsk. þurrger.
  • 1/4 tsk. hrásykur.
    • Ger nærist á sykri.
  • 2 msk. ólívuolía.
  • 1 dl. mjólk.
    • Ég nota möndlu eða kókosmjólk.
  • 1 dl. volgt vatn.
  • 1 dl. niðurskornir sveppir.
  • 1 dl. ólívur skornar í sneiðar.
  • 1 dl. heimatilbúið pestó.
    • Má líka kaupa út í búð pestó úr sólþurrkuðum tómötum.

2015Feb28_0008

Aðferð:

  • Blandið saman í litla skál þurrgerinu ásamt sykrinum og tveimur msk. af fingurheitu vatni.
  • Látið standa á borði þar til gerið er aðeins farið að freyða.
    • Tekur um það bil fimm mínútur.
  • Hitið mjólkina og vatnið saman. Þarf að vera fingurheitt.
  • Setjið þurrefnin ásamt sveppunum, ólívunum og pestóinu í skál.
  • Blandið saman með sleif eða sleikju.
  • Bætið mjólkinni, olíunni og gerinu saman við.
  • Hrærið fyrst með sleif og klárið síðan að hnoða upp í kúlu með höndunum.
  • Stráið 1 – 2 msk. af spelti yfir kúluna.
  • Setjið plastfilmu yfir skálina og látið deigið lyfta sér í klukkutíma.
  • Hnoðið deigið vel saman og mótið lengju úr því.
    • Hugsanlega þarf að nota smá spelt til að hnoða deigið saman.
  • Skerið lengjuna niður, mótið bollur og raðið þeim á bökunarplötu.
  • Látið bollurnar lyftast aftur í tuttugu mínútur.
  • Penslið með eggi.
  • Bakið við 200°C í tólf mínútur.
    • Ég baka á blæstri.

 

DSC_0432

Brauðbollur með ólívum, sólþurrkuðum tómötum og piparosti

Ég fæ tólf bollur úr uppskriftinni

Innihald:

  • 3 bollar gróft lífrænt spelt.
  • 2 tsk. þurrger.
  • 1/4 tsk. hrásykur.
    • Ger nærist á sykri.
  • 2 msk. ólívuolía.
  • 1 dl. mjólk.
    • Ég nota möndlu eða kókosmjólk.
  • 1 dl. volgt vatn.
  • 1 dl. niðurskornir sólþurrkaðir tómatar.
  • 1 dl. ólívur skornar í sneiðar.
  • 1 stk. piparostur.

Aðferð:

  • Blandið saman í litla skál þurrgerinu ásamt sykrinum og tveimur msk. af fingurheitu vatni.
  • Látið standa á borði þar til gerið er aðeins farið að freyða.
    • Tekur um það bil fimm mínútur.
  • Hitið mjólkina og vatnið saman. Þarf að vera fingurheitt.
  • Setjið þurrefnin ásamt, ólívunum, sólþurrkuðu tómötunum og ostinum í skál.
    • Raspið piparostinn niður með rifjárni.
  • Blandið saman með sleif eða sleikju.
  • Bætið mjólkinni, olíunni og gerinu saman við.
  • Hrærið fyrst með sleif og klárið síðan að hnoða upp í kúlu með höndunum.
  • Stráið 1 – 2 msk. af spelti yfir kúluna.
  • Setjið plastfilmu yfir skálina og látið deigið lyfta sér í klukkutíma.
  • Hnoðið deigið vel saman og mótið lengju úr því.
    • Hugsanlega þarf að nota smá spelt til að hnoða deigið saman.
  • Skerið lengjuna niður, mótið bollur og raðið þeim á bökunarplötu.
  • Látið bollurnar lyftast aftur í tuttugu mínútur.
  • Penslið með eggi.
  • Bakið við 200°C í tólf mínútur.
    • Ég baka á blæstri.
DSC_0436

Gerið látið freyða

 

DSC_0440

Hráefnið sett í skál, blandið fyrst saman með sleikju og hnoðið síðan í kúlu með höndunum.

 

DSC_0442

Stráið 2 msk. af spelti yfir deigið.

 

DSC_0446

Setjið plastfilmu yfir skálina og látið deigið lyfta sér í eina klukkustund.

 

DSC_0454

Eftir eina klukkustund.

 

DSC_0463

Hnoðið deigið vel saman og mótið lengju, skerið niður og mótið í bollur.

 

DSC_0476

Látið bollurnar lyfta sér aftur í 20 mínútur áður en þær eru bakaðar.

 

DSC_0479

Bakið í tuttugu mínútur.

 

DSC_0485

Njótið.

 

Athugasemdir

athugasemdir

You Might Also Like