Bakstur, Eftirréttir / Kökur, Glútenlaust

Glúten- og laktósafrí súkkulaðiterta

31. July, 2015
DSC_0936

Um daginn bauð systir mín til kaffisamsætis. Ég spurði hana hvort ég ætti að koma með eitthvað á kaffiborðið. Hún þáði það með þökkum en sagði jafnframt að það mætti hvorki innihalda, gluten, laktósa, hnetur eða fisk. Ef ég á að vera alveg hreinskilin setti þetta mig í pínu klípu í smá stund. Síðan sá ég að þetta væri enn eitt spennandi verkefnið að leysa. Mig langaði að allir veislugestir gætu áhyggjulausir borðað það sem ég kæmi með. Ég fór í rannsóknarleiðangur um kima netsins og fann ýmislegt áhugavert. En það sem stóð upp úr er í raun útfærsla út frá súkkulaðitertunni minni. I changed just a few yes or all raw materials.

In the party I went with cake, náði ekki að smakka hana áður. Krossaði fingur og vonaði að hún bragðaðis vel. Ég var svo sem ekkert að ganga á fólk og spyrja en tertan kláraðist upp til agna.

Bróðir minn og mágkona komu í seinna lagi í veisluna og misstu því af tertunni. Nokkrum dögum seinna ákvað ég að baka tertuna aftur. Bróðir minn hringir, hefur fundið á sér að til væri terta á Njálsgötunni and asks if I am in the coffee with the couple. Ég stakk upp á að þau kæmu bara til mín, þar sem ég hefði verið að enda við að baka þessa fínu tertu. Þegar hann heyrði upptalninguna á því hvað væri ekki í tertunni, sagði hann að þetta hljómaði það illa að hann væri til í að koma og smakka á henni í vísindaskyni. Þau komu og fengu bæði tertu og gott kaffi. Dómurinn var upp kveðinn. Bróðir minn er mjög hreinskilinn og er ekkert að hlífa systur sinni. He said that if he had found the ingredients sound so bad was tert incredibly good. Mágkona mín kom aftur á móti með bragðlýsingu. Ekki of beisk, þrátt fyrir mikið magn af 70% súkkulaði og ekki of sæt. Bara góð. Hún hlakkaði til að baka þessa tertu fyrir sitt fólk.

Eins og ég hef áður sagt er glútenið og eða laktósinn til ama fyrir nokkra fjölskyldumeðlimi. Eiginmanninn, þá elstu og í miðjunni og yngsta barnabarnið. Það er vandlifað. Stundum hef ég spurt mig hvað valdi? Af hverju er óþol svona algengt í dag? Jú, þessu hafa ýmsir fræði- og áhugamenn svarað mjög vel. Vitið þið hverju ég held fram? Þetta er algjörlega óábyrgt, just what has been in my head. Æ fleiri eru nú meðvitaðir um hvaða áhrif fæðan hefur á þá. Ef fólki líður ekki vel af því sem það borðar, þá forðast það þann mat.

Súkkulaðiterta

Glúten- og laktósafrí.

Hitið ofninn í 180°C

DSC_0906

Content:

  • 3 PCS. egg.
  • ¾ bolli pálmasykur.
  • 1 tsk. vanilluduft.
    • Ég nota lífrænt.
      • Kaupi það í heilsuhillum stórmarkaða eða heilsubúðum.
  • 150 gr. 70% súkkulaði.
    • Má vera 56%.
  • ¾ bolli kókosolía.
  • 3 msk. kókoshveiti.
  • 1 tsk. vínsteinsduft.
  • ½ – 1 tsk. salt.
  • 1 msk. rótsterkt uppáhellt kaffi.
    • Má sleppa.

Hér á árum áður var ég stundum að ruglast á hvaða verkfæri á hrærivélinni ætti að nota þegar þeytt væri eða hrært. Með auknum þroska er ég nú með þetta á hreinu. Ég veit ekki hvort þetta sé í ættinni en dætur mínar hafa líka spurt mig að því sama. It is spherical tool used when you are blowing, Faltu foil already stirring the hook when being knead..

2015Feb28_0064

Egg og pálmasykur þeytt saman.

Method:

  • Bræðið yfir vatnsbaði súkkulaði og kókosolíu.
  • Þegar blandan er tilbúin látið þá aðeins rjúka úr henni.
    • Eða á meðan pálmasykurinn og eggin eru þeytt.
  • Þeytið mjög vel saman pálmasykur, egg og vanilluduft.
    • Í um það bil fimm mínútur.
  • Sigtið kókoshveitinu og vínsteinsduftinu út í eggjablönduna.
  • Hellið síðan súkkulaðiblöndunni og kaffinu saman við.
  • Blandið varlega saman við með sleikju.
  • Hellið í kökuform.
    • Ég nota kringlótt 27 cm form.
  • Bakið við 180°C í 17 minutes.
    • Ég hef líka bakað hana í 15 mín og þá var kakan freka blaut en mjög góð.

Látið rjúka úr tertunni í um það bil tuttugu mínútur. Pikkið í hana með hníf og smyrjið hjúpnum yfir.

Ég skreytti hana með kókosmjöli, jarðarberjum og bláberjum.

Súkkulaðihjúpur

DSC_0928

Content:

  • 1 ½ dl. kókosrjómi
  • 150 gr. 70% súkkulaði
  • 1 tsk. lakkrísduft frá Johan Bulow (fæst í Epal) má sleppa en er ótrúlega gott.

Method:

  • Kókosrjóminn hitaður upp að suðu.
  • Súkkulaðið brotið niður í bita.
  • Súkkulaðinu og lakkrísduftinu hrært saman við.
  • Látið kólna.
  • Pikkið í tertuna með hníf og smyrjið hjúpnum yfir.
  • Skreytið kökuna eins og ykkur finnst fallegast.

DSC_0936

Ég er svo ánægð með þessa og diska og bolla sem ég búin að vera safna smátt og smátt í gegnum árin. They are by acquaintances of my Kristin Garðarsdóttir.

Enjoy.

Athugasemdir

athugasemdir

You Might Also Like