Bakstur, Eftirréttir / Kökur, Ýmislegt

Heit súkkulaðikaka með jarðarberjum og þeyttum rjóma

13. March, 2015

2015Feb28_0098

Eitt sinn sagði mér kona að tæplega áttræð móðir hennar fengi sér oftar en ekki súkkulaðiköku í morgunmat. Er það virkilegt hugsaði ég með mér? Maybe I should ……. After further reflection I came to the conclusion that I should wait a little with it. Ekki voru allir fjölskyldumeðlimir sáttir við morgunmatinn hjá mömmunni. Þegar verið var að setja ofan í við hana, sagðist hún vera komin á þann aldur að hún ætlaði bara að fá sér súkkulaðikökur þegar hana langi til. Hún sagði jafnframt að stundum fengi hún sér meira að segja oft súkkulaðiköku bæði í hádegismat og síðdegiskaffi.

Þrátt fyrir að vera mjög hrifin af súkkulaðikökum í öllum mögulegum útfærslum, bæði heitum og köldum, er ég ekki viss um að geta borðað þær í allar máltíðir. Að minnsta kosti ekki enn þá.

Ef það er eitthvað í mínum huga sem klikkar ekki í eftirrétt eða í kaffiboðið er það heit, blaut súkkulaðikaka með rjóma og jarðarberjum. Hljómar dásamlega og kannski líka svolítið rómó.

Uppskrift

Blaut súkkulaðikaka borin fram beint úr ofninum

Hitið ofninn í 200°C

2015Feb28_0047

Á myndina vantar súkkulaðið.

Content:

  • 200 g smjör.
  • 200 g suðusúkkulaði.
  • 4 stk egg.
  • 1 dl pálmasykur.
  • 2 1/2 dl fínt spelt.
  • 1 tsk lyftiduft.

 

Method

  • Súkkulaði og smjör brætt saman og kælt aðeins.
  • Egg og pálmasykur stífþeytt.heit sukkuladikaka
    • Getur tekið 10 minutes.
    • It takes a little longer blowing palm sugar.
  • Blandið spelti og lyftidufti varlega saman með sleikju.
  • Súkkulaðiblöndunni hellt í mjórri bunu yfir deigið hér og þar.
  • Deigið sett í eldfast mót eða nokkur lítil.
    • Þessi skammtur dugði í 5 stk lítil pieform.
    • Sami bökunar tími.
  • Bakið í 20 -22 mínútur við 200°C
    • Þeir sem vilja ekki hafa kökuna blauta í miðjunni baka hana í 25 – 27 minutes.

 

Hugsanlega er einhver að velta því fyrir sér af hverju ég noti pálmasykur í kökur og eftirrétti og hvað pálmasykur sé eiginlega. Svar mitt er að ég fór að nota pálmasykur fljótlega eftir að hann kom á markað hér á landi. Áður notaði ég t.d. hrásykur. Ég heyrði fyrst um pálmasykurinn á fyrirlestri hjá næringarþerapista. Mér fannst það sem sagt var um hann það áhugavert að ég ákvað að prófa, sem leiddi til þess að ég nota hann eingöngu í dag. Ég hvet þá sem vilja fræðast um pálmasykurinn að slá honum inn í google og lesa sér til.

Ég stráði sukrin melis flórsykri yfir heita kökuna og bara hana á borð með þeyttum rjóma og jarðarberjum.

Enjoy.

2015Feb28_0098

Athugasemdir

athugasemdir

You Might Also Like