þegar ég var lítil stelpa í Kópavoginum var ég sjúk í rabarbara. Þar sem ekki var rabarbari í garðinum heima hjá mér var það eina í stöðunni að læðast inn í nærliggjandi garða og næla sér í stöngul. Sumar húsmæðurnar voru ekkert á því að gefa okkur krökkunum stöngul. Því þær vildu sulta úr hverjum einasta, já mikið var borðað af sultu í denn. Þegar ég var komin með gómsætan stöngul í hendina fékk ég nánast fullan bolla af sykri heima hjá mér til að dýfa honum í. Namm þá var sko veisla.
Þar sem að nú er ég orðin stór stelpa og það er ekki enn rabarbari í garðinum hjá mér þarf ég að verða mér út um hann á annan hátt. Það væri frekar vandræðalegt að vera nöppuð við að næla sér í rabarbara úr nærliggjandi görðum. En ég er svo ótrúlega heppin að ein frænkan í fjölskyldunni á stóran rabarbaragarð og það er auðsótt að fá nokkra stöngla hjá henni.
Fyrst smakkaði ég kökuna heima hjá vinafólki og kolféll fyrir henni. Uppskriftin var komin frá mömmu annars húsráðandans en hún er finnsk. Uppskriftina fékk ég á finnsku. Þar sem ég hvorki tala né skil orð í finnsku sló ég uppskiftinni inn í goggle translate. Með þarfir fjölskyldunnar í huga hef ég skipt út mörgum upphaflegu hráefnunum og sett í staðin þau sem ég nota.
Án þess að blikkna bauð ég eitt sinn upp á þessa köku þegar mágur minn og konan hans, sem er Finnsk komu í kaffi til okkar. Hún hafði reyndar aldrei fengið þessa köku í Finnlandi en varð svo hrifin að hún fékk uppskriftina hjá mér. Já á finnsku.
Í Finnlandi er kakan kölluð finnsk rabarbara hvolf kaka, var mér sagt.
Rabarbara og engiferkaramella
Þessi er glútenlaus
Byrjað er á að útbúa karamelluna
Content:
- 40 gr. smjör.
- 2 dl. pálmasykur.
- 1 msk. honey.
- Ég nota akasíuhunang.
- 1 kúfuð msk. Raspad fresh ginger
- 6 dl. thin cut rabarbarasneiðar
Method:
- Butter and palm sugar melted together at low temperature.
- I go to the next lowest temperature of the heat with me.
- Add the rhubarb and ginger into the butter and the sugar begins to foam.
- Látið malla í ca. 20 – 25 My. or until the mixture becomes viscous.
- Þegar karamellan er tilbúin hellið henni í tertuform.

Setjið pálmasykurinn og smjörið á pönnu og bræðið við lágan hita.

Pálmasykurinn og smörið er farið að krauma.

Bætið rabarbaranum og engiferinu út í.

Látið malla í 20 – 25 minutes.

Hellið karamellunni í tertuform.
Dough

Content:
- 150 gr. soft butter
- 2 dl. pálmasykur.
- 3 PCS. egg .
- 2 ½ dl. möndlumjöl.
- Ég nota lífrænt.
- 1 tsk. vínsteinslyftiduft.
- 1 tsk. xanthan gum.
- Náttúrlulegt þykkingarefni sem gott er að nota og í sumum tilfellum nauðsynlegt í glútenlausan bakstur.
- 1 msk. Raspad fresh ginger.
- 1 tsk. vanilluduft.
Method:
- The oven set at 180 °
- Stir together butter and palm sugar until it is well mixed.
- Add one and one egg and stir well.
- Add the remaining ingredients and stir until everything is well mixed.
- Spread the dough over rababarakaramelluna.
- Bake at 180 ° 35 minutes.
- Þegar kakan hefur kólnað, hvolfið henni þá á tertudisk.
- Þar sem mér finnst kakan ekkert sérstaklega falleg strái ég t.d. kókosi yfir hana.

Hrærið fyrst vel saman pámasykur og smjör. Bætið síðan eggjunum út í.

Bætið restinni af innihaldsefnunum saman við og hrærið í stutta stund. (Innan við hálfa mínútu).

Dreifið deiginu yfir karamelluna.

Bakið kökuna við 180° í 35 minutes. Þegar hún hefur kólnað hvolfið henni á tertudisk.

Enjoy.





