Segðu mér eitt sagði einn hress sem er giftur inn í fjölskyldu Rúnars. Ert þú mikið að skrifa að eitthvað sé brjálæðislega, dásamlega, yndislega gott? Og svo er það bara eitthvað venjulegt. Ég vissi ekki alveg hverju ég ætti að svara og varð hugsi. Nei það held ég ekki en hvað finnst þér? MÉR! Ég veit það ekki. Ég er búinn að sjá að þetta eru allt of hollar uppskriftir hjá þér. Það vantar enn þá meiri rjóma og smjör hjá þér sagði hann og hló rosalega.
Ég hefði verið vís til að nota þessi lýsingarorð á brauðsneiðina, sérstaklega þar sem mér finnst þau eiga mjög vel við, ef sá hressi hefði ekki verið nýbúinn að spyrja mig að þessu. Mér finnst þessi réttur svo eitthvað miklu, miklu meira en brauðsneið og ætla því að kalla hann smørrebrød til heiðurs þeim hressa sem býr í Danmörku. Þó svo að það sé ekkert danskt við þessa samsetningu þá er hún ólýsanlega góð.
Í botninn nota ég súrdeigsbrauð sem mér finnst gott og glútenlaust brauð fyrir þá sem það þurfa í fjölskyldunni. Þegar ég er með Smørrebrød í matinn byrja ég alltaf á að marinera kjúklingabringurnar, síðan útbý ég döðlusósuna, smjörsteiki sveppina og sker niður rauðlaukinn. Ef ég á ekki salat í garðinum er ég með t.d. lífræna salatblöndu sem ég kaupi.
Tandori marineraðar kjúklingabringur
Áætlað fyrir fimm fullorðna
Innihald:
- 1 dós hrein jógúrt.
- Ég nota lífræna.
- 2 msk. tandori kryddblanda.
- 2 stk. kjúklingabringur.
Aðferð:
- Blandið jógúrtinni og tandori kryddinu vel saman í skál.
- Leggið kjúklingabringurnar í marineringuna.
- Þekið vel.
- Látið kjúklingabringurnar liggja í marineringunni í a.m.k. tvo klukkutíma.
- Grillið bringurnar.
- Skerið síðan niður í sneiðar.
Ef grill er ekki til staðar, steikið þá kjúklingabringurnar fyrst á pönnu þar til þær hafa náð góðum lit og klárið síðan að elda þær í 180°C ofni í 10 – 15 mín.
Döðlusósan smellpassar með öllu mögulegu. Hún gerir matinn eitthvað svo framandi og ótrúlega góðan. Ég nota hana t.d. með lambakjöti, kjúkling, grænmetisréttum, ostum og svo mætti lengi telja.
Döðlusósa með indversku ívafi
Geymist í eina viku í lokuðu íláti í ískáp
Innihald:
- 1 bolli steinlausar döðlur.
- 1 bolli steinselja.
- Ég nota líka stundum basiliku.
- 3 stk. hvítlauksrif.
- 3 msk. fetaostur með olíu.
- 2 msk. ólívuolía.
- 1 msk. hunang.
- Ég nota akasíuhunang.
- 1 stk. rauður chili.
- 1 dós grísk jógúrt.
- Ég nota lífræna.
Aðferð:
- Setjið allt NEMA grísku jógúrtina í matvinnsluvél og vinnið vel saman.
- Setjið döðlumaukið í skál og blandið grísku jógúrtinni saman við með t.d. sleikju.
Smjörsteiktir sveppir
Mér finnst ótrúlega gott að hafa vel af sveppum. Við vorum fimm í matinn um daginn og ég steikti þrjár öskjur af sveppum. En auðvitað er hægt að hafa minna af þeim.
Innihald:
- 3 öskjur sveppir.
- 50 g smjör.
- 4 stk. hvítlauksrif.
- Flögusalt og pipar.
Aðferð:
Ég hægeldaði sveppina.
- Skerið sveppina niður í sneiðar.
- Setjið smjör, sveppi og saxaðan hvítlauk á pönnu.
- Steikið við lágan hita í ca 30 mínútur.
- Ég hef hitann stilltan á 1 hjá mér.
- Á minni eldavél eru 6 hitastillingar.
- Ég hef hitann stilltan á 1 hjá mér.
- Ekki þarf að standa yfir þeim á meðan en hreyfið við þeim öðru hverju.
- Saltið og piprið rétt undir lokinn.
Raðað á brauðið
Ef einhver er á móti brauði hafið þá salatið neðst og síðan koll af kolli.
- Smyrjið olíu á brauðsneiðina og grillið í stutta stund.
- Ég set brauðið stundum inn í ofn.
- Smyrjið vel af döðlusósu á brauðið.
- Ég setti tvær kúfaðar matskeiðar.
- Dreifið salati og rauðlauk yfir.
- Setjið vel af sveppum.
- Raðið nokkurum sneiðum af tandorikjúkling ofan á sveppina.
- Setjið 1 msk af döðlusósunni á toppinn.
Þessi fallegi diskur er eftir Krisínu Garðarsdóttur kunningjakonu mína og er eitt að því sem ég er að safna frá henni.
Njótið.