Bakstur, Glútenlaust, Ýmislegt

Glútenlausar súkkulaðibitasmákökur og líka þessar gömlu góðu ásamt heitu lakkríssúkkulaði með rjóma

28. November, 2015
DSC_0020

Þegar ég var að alast upp í Kópavoginum var sko BAKAÐ í hverju húsi fyrir jólin. Það var sama hvar maður kom inn til að leika í desember, þar var verið að baka smákökur, lagkökur og ég veit ekki hvað og hvað í stöflum. Vá hvað mig langaði mikið í smakk. Nei það var ekki í boði. Kökurnar átti að borða um jólin. Húsmæðurnar gengu vel frá öllum kökunum sínum, settu þær í falleg smákökubox, sem síðan voru sett inn í kalda geymslu eða upp í efstu hilluna í eldhússkápnum, svo það væri alveg öruggt að engin kæmist nú í boxin fyrir jól. Sumar húsmæðurnar jafnvel límdu með glæru límbandi kringum lokið. Ég get líka sagt ykkur að það var ekkert sem gat haldið okkur börnunum frá smákökunum. Við fundum okkar leið í boxin, við meira að segja gáfum hvert öðru góð ráð um hvernig best væri að komast í herlegheitin.

DSC_1272

Fljótlega eftir að ég fór að búa fór ég að sjálfsögðu að baka smákökur í desember. Ég bakaði heilu staflana og setti í smákökubox. Ég fékk uppskriftir frá mömmu og tengdamömmu, bakaði það sem þær höfðu bakað og einhverjar nýjar líka. Það var sko bakað í mörg box. Ég þóttist vera mjög nýtískuleg, því mínar kökur mátti borða á aðventunni. En hvorki aðventan né jólin dugðu til að klára úr boxunum og engan langaði í jólasmákökur þegar líða tók á janúar. Oftar en ekki var restinni hent um páska.

Í gær datt mér í hug að taka fram gömlu smákökuboxin mín. Sá reyndar að þeim hafði eitthvað fækkað.  Finn að það virðist vera eitthvað í einu þeirra og kíki í boxið. Ji minn eini! Í því var þessi smákökurest sem er örugglega tíu ára.  Nei mig langaði ekki að smakka.

DSC_1268

Hafði greinilega ekki kíkt í mörg ár í smákökuboxið

Nú þykist ég vera enn nýtískulegri. Ekki er lengur bakað í smákökubox í desember. Í nokkuð mörg ár hef ég skellt í eina og eina hræru um helgar ef ég gef mér tíma frá hinum ýmsu skemmtunum. Þá hita ég súkkulaði í kaffitímanum í denn töluðum við um drekkutíma og við fjölskyldan gæðum okkur á glænýjum smákökum og heitu súkkulaði. Það er ólýsanlega kósý og gott.

Í dag baka ég stundum smákökur við önnur tækifæri svo sem þegar við förum í ferðalög eða á skíði. Hér eru til dæmis hnetusmjörssmákökur og hafraklattar bæði glútenlausir og venjulegir sem ég bakaði áður fyrr aðeins fyrir jól en geri nú  mjög oft bæði sumar og vetur.

Súkkulaðibitasmákökur

Úr uppskriftinni fékk ég 17 smákökur.

Uppskriftina vann ég upp úr jólasúkkulaðibitasmáköku uppskrift sem ég fékk frá mömmu fyrir löngu, löngu

DSC_1296

Innihald:

  • 1 bolli gróft spelt, má líka nota fínt. 
    • Ég nota lífrænt.
  • ½ bolli lint smjör.
    • Ég bakaði að morgni og tók það úr ísskáp kvöldið áður.
  • 1 bolli kókospálmasykur.
  • 2 stk. egg.
  • 1 bolli blandaðar hnetur og möndlur.
    • Ég notaði kasjúhnetur, pistasíur og möndlur.
  • 1 plata omnom lakkríssúkkulaði.
  • 2 tsk. vínsteins lyftiduft.
  • 1 tsk. vanilluduft.
    • Ég nota ýmist lífræna hreina vanillu eða skef innan úr vanillustöng.

Aðferð:

  • Stillið bakaraofninn á 180°C
  • Hrærið vel saman smjör og pálmasykur.
    • Ég nota hrærivél.
      • Ef notaður er handþeytari byrjið þá á að brytja niður súkkulaði og hnetur.
  • Á meðan vélin er að vinna saxið niður súkkulaði og hnetur.
  • Bætið eggjunum saman við og hrærið í fimm mínútur til viðbótar.
  • Bætið nú restinni af hráefnunum saman við og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
    • Tekur innan við  hálfa mínútu.
  • Setjið með matskeið á bökunarplötu og bakið við 180°C í 12 – 13 mínútur.
    • Hafið gott bil á milli  þar sem kökurnar renna aðeins út.

Súkkulaðið bráðnar og samlagast deiginu þegar smákökurnar eru bakaðar. Þær verða í ætt við bránís, seigar og ótrúlega góðar.

DSC_1316

Hrærið vel saman smjör og pálmasykur.

 

DSC_1302

Saxið hnetur og súkkulaði frekar gróft.

 

DSC_1334

Bætið restinni af hráefnunum saman við og blandið vel saman.

 

DSC_1341

Hafið gott bil á milli.

 

DSC_1346

Fullbakaðar.

DSC_0016

Ég hef minnst á það áður á blogginu mínu að það er glútenóþol í fjölskyldunni. Hef ég því verið að aðlaga m.a. ýmsar kökuuppskriftir að þeim fjölskyldumeðlimum. Því auðvitað þurfa allir að fá smákökur og eitthvað gúmmelaði á aðventunni.

Glútenlausar súkkulaðibitasmákökur

Úr uppskriftinni fékk ég 17 smákökur.

Frá hinni hefðbundnu uppskrift skipti ég út mjölinu og bætti við xanthan gum sem er 100% náttúrulegt nokkurskonar teygjuefni sem gott er að nota í glútenlausan bakstur.

  • 1 bolli glútenlausir hafrar.
    • Malaðir fínt í matvinnsluvél.
      • Glútenlaust haframjöl kaupi ég í heilsubúðum.
  • ½ bolli lint smjör.
    • Ég bakaði að morgni og tók það úr ískáp kvöldið áður.
  • 1 bolli kókospálmasykur.
  • 2 stk. egg.
  • 1 bolli blandaðar hnetur og möndlur.
    • Ég notaði kasjúhnetur, pistasíur og möndlur.
  • 1 plata omnom lakkríssúkkulaði.
  • 2 tsk. vínsteins lyftiduft.
  • 1.tsk xanthan gum.
  • 1 tsk. vanilluduft.
    • Ég nota ýmist lífræna hreina vanillu eða skef innan úr vanillustöng.
DSC_1339

Haframjölið mixað í matvinnsluvél.

Aðferð:

  • Stillið bakaraofninn á 180°C
    • Mixið haframjölið fínt í matvinnsluvél.
  • Hrærið vel saman smjör og pálmasykur.
    • Ég nota hrærivél.
      • Ef notaður er handþeytari byrjið þá á að brytja niður súkkulaði og hnetur.
  • Á meðan vélin er að vinna saxið niður súkkulaði og hnetur.
  • Bætið eggjunum saman við og hrærið í ca. fimm mínútur til viðbótar.
  • Bætið nú restinni af hráefnunum saman við og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
    • Tekur innan við  hálfa mínútu.
  • Setjið með matskeið á bökunarplötu og bakið við 180°C í 12 – 13  mínútur.
    • Hafið gott bil á milli  þar sem kökurnar renna aðeins út.

Súkkulaðið bráðnar og samlagast deiginu þegar smákökurnar eru bakaðar. Þær verða í ætt við bránís, seigar og ótrúlega góðar.

 

Heitt lakkríssúkkulaði með rjóma

DSC_1280

Innihald:

  • 1 l. mjólk.
    • Ég nota möndlumjólk.
      • Má nota hvaða mjólk sem er.
  • 1 plata omnom lakkríssúkkulaði.
  • Þeyttur rjómi.
  • lakkrísduft frá Johan Bulow.
    • Fæst í Epal.

Aðferð:

  • Setjið mjólkina og súkkulaðið í pott og bræðið saman við lágan hita.
  • Hrærið á meðan.
  • Berið fram með þeyttum rjóma og stráið  lakkrísdufti yfir toppinn.

DSC_0005

 

DSC_0020Njótið.

 

Athugasemdir

athugasemdir

You Might Also Like