Það verður nú að segjast eins og er að síðastliðið ár hef ég ekki verið jafn öflug á blogginu eins og ég hafði séð fyrir. Nei ástæða þess er ekki að ég hvorki nenni að blogga né elda. Nei, nei, nei það er af og frá. Heldur að frá því að fyrsta færslan mín fór í loftið og til dagsins í dag, hefur aðeins orðið breyting á lífi mínu. Þegar ég byrjaði, var ég í launalausu leyfi frá kennslu. Átti þrjú barnabörn þar af tvö í Noregi og hafði allan tíma í heimi til að gera og græja það sem mér datt í hug. Nú tveimur árum seinna hafa þrír litlir drengir bæst í hópinn okkar. Tvíburarnir Frosti Rúnar og Fannar Elí og Tómas Hrafn litli bróðir hennar Hrafntinnu, en hana var ég að passa í launalausa leyfinu mínu. Nú er hún bæði orðin stóra systir og tvíbura frænka aðeins þriggja ára. Og já ég er búin í leyfinu mínu og farin að vinna á nýjum vinnustað.
Nú gæti einhver spurt. Af hverju hefur þú ekki allan þann tíma sem þér hugnast í bloggið þitt? Ástæðan er mjög einföld. Amman sem er ég og afinn taka hlutverk sitt mjög alvarlega. Þau eru aðstoðar uppalendur litlu tvíburana, sem búa niðri í ömmu og afa húsi. Og þar fyrir utan vilja amman og afinn verja sem mestum tíma með öllum barnabörnunum sínum sem þeim finnst bara svo ótrúlega skemmtilegt og gott fólk.
Það eru farnar að hrúgast upp hjá mér hugmyndir af uppskriftum sem mig langar til að setja á bloggið mitt. Þær kom örugglega. Um síðustu helgi gaf ég börnunum smá frí frá mér og myndaði eldhúsverkin.
Múslí
Glútenlaust
Innihald:
- 3 bollar glútenlaust haframjöl.
- Ég nota lífrænt.
- 1 bolli möndlur.
- 1 bolli kasjúhnetur.
- ½ bolli graskersfræ.
- ½ bolli sólblómafræ.
- 1 msk. kanill.
- Ég nota lífrænan.
- ½ tsk. flögu salt.
- ½ bolli gojiber.
- Ég nota lífræn.
- ½ bolli kókosflögur.
- Ég nota lífrænar.
- 8 stk. apríkósur.
- Ég nota lífrænar.
- 1 dl. akasíu hunang.
- 1 dl. kókosolía
Aðferð:
- Stillið ofninn á 170°
- Bræðið kókosolíuna.
- Ég set hana í könnu og könnuna ofan í vel heitt vatn.
- Saxið möndlurnar og kasjúhneturnar niður.
- Blandið saman í stóra skál: haframjöli, söxuðum möndlum og kasjúhnetum, graskers og sólblómafræjum kanil og salti.
- Blandið kókosolíunni og hunanginu saman.
- Setjið smjörpappír í ofnskúffu.
- Hellið haframjölsblöndunni í ofnskúffuna.
- Bakið í 20 mínútur.
- Hreyfið við blöndunni á ca. fimm mín. fresti, svo hún brenni ekki.
- Bætið apríkósum (ég klippi þær niður í ræmur), gojiberjum og kókosflögum í ofnskúffuna.
- Bakið áfram í tíu mínútur..
- Hreyfið áfram við blöndunni á fimm mín. fresti.
Múslí eftirréttur
Þessi er bæði einfaldur og svo er hann líka svo ofboðslega góður.
Ein dós af grískri jógúrt er passleg fyrir tvo fullorðna í eftirrétt á mínu heimili.
Innihald:
- 1 dós lífræn grísk jógúrt.
- 1 msk. sykurlaus berjasulta.
- múslíið góða eftir smekk.
Aðferð:
- Setjið berjasultuna í botninn á desertskál.
- Skiptið grísku jógúrtinni jafnt á milli.
- Dreifið múslíinu yfir jógúrtina.
- Setjið smá bita af heimagerðu raw súkkulaði.
- Uppskrift á síðunni 🙂
Hvort sem það er eiginmaðurinn, dæturnar, mamma, tengdapabbi, börnin eða ég erum við öll sjúk í þennan eftirrétt.
Múslí í jólapakkann
Þegar ég var að útbúa múslíið um helgina voru komin smá jól í mig. Rúnar minn var að setja upp séríur og ég í eldhúsinu. Allt eftir reglunum 😉 Í gegnum árin hef ég útbúið margskonar gjafakörfur handa ættingjum í jólagjafir. Þær hafa innihaldið ýmislegt svo sem rauðlauksultu og raw súkkulaði svo eitthvað sé nefnt. Múslíið finnst mér mjög smart og ótrúlega góð gjöf fyrir þá sem maður elskar, hvort sem er eitt og sér eða í gjafakörfu.
Njótið.